Jæja, þá er jólahýsterían að fara af stað. Las einhvers staðar að meðalmanneskjan eyðir svona u.þ.b. 50.000 kr í jólagjafir. Helmingurinn er örugglega eitthvað sem enginn hefur þörf fyrir og gleymist fljótt (ég segi bara fótanuddtæki!).
Í alvöru, munið þið hvað þið fenguð í jólagjöf í fyrra? Nei, mig grunaði það nefnilega.
Hvernig væri nú að reyna að halda græn og umvherfisvænni jól! Það má t.d. búa til fallega pottaleppa með því að sjóða gamlar peysur og klippa út leppa. Eða gefa upplifun eins og leikhúsmiða, barnapössun, fótanudd (alvöru...ekkert tæki), dansnámskeið eða jógatíma. Það er líka örugglega gaman að fá ljóð eða smásögu í jólagjöf (þetta er sérstakt hint norður í land!). Já, eða bara hreinlega að Amnesty eða Rauði Krossinn fái pening í staðinn fyrir að við fáum jólagjafir.
Hér verður mikið um ekólógiskar jólagjafir. Við fjölskyldan erum ekki komin svo langt í lífsstílsbreytingunni að við séum hætt að kaupa jólagjafir (langt í það...) en þær verða sko alveg örugglega organic í ár. Það verður líka jólatré hjá okkur og við erum með jólaljós í gluggunum....en þau eru á timer þannig að það kviknar bara á þeim á morgnana og kvöldin.
Ég hef alltaf verið mikið jólabarn (í orðsins fyllstu merkingu!). Í ár ætla ég að vera grænt jólabarn en vona þó að jólin verði hvít.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Ég er að vonast eftir hvítum jólum - þetta er alveg nýtt fyrir mér. Ég náði hintinu og læt vafalaust eina góða vísu fljóta með kortinu í ár - þrátt fyrir að afinn sé mun betri í þessum málum en ég.
Skrifa ummæli